Lögreglan fékk rangar upplýsingar

Sérsveit lögreglunnar var kölluð út að húsi á Seltjarnarnesi um sjöleytið í kvöld að því er fram kemur á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar segir að mikill viðbúnaður hafi verið viðhafður og umsátursástand við húsið að sögn sjónarvottar.

Var götunni sem húsið stendur lokað um tíma. Rúmlega klukkustund síðar óku síðustu lögreglubílar á brott. Haft er eftir lögreglunni að upplýsingar hafi borist sem ekki hafi reynst eiga við rök að styðjast. Fyrir vikið var enginn handtekinn vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert