Strætisvagni var ekið utan í karlmann í miðborginni á fimmta tímanum í dag að því er greint er frá í dagbók lögreglu.
Hlaut maðurinn áverka á fæti og var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til skoðunar og aðhlynningar.
Þá var óskað eftir aðstoð slökkviliðs og lögreglu um ellefuleytið í morgun vegna kælirörs sem sprakk í ísskáp inni á heimili í miðborginni. Engin slys urðu á fólki eða frekari tjón vegna þessa.