Herjólfur stefnir til Landeyjahafnar í dag en óvissa er með ferðir skipsins til og frá höfninni klukkan 11 og 12.45 vegna flóðastöðu.
Tilkynning vegna þessara ferða verður send út klukkan 10.
Herjólfur stefnir á að sigla til og frá Landeyjahöfn alla helgina.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu Herjólfs.