Loðnan nær ströndum Grænlands en áður

Sigurður VE að gefa Álsey VE loðnu úr síðasta kastinu …
Sigurður VE að gefa Álsey VE loðnu úr síðasta kastinu sínu. Ljósmynd/Ágúst Halldórsson

Lagt er til að leyft verði að veiða 208 þúsund tonn af loðnu á vertíðinni 2017/2018. Í loðnuleiðangri í haust var dreifingin mjög vestlæg eins og á undanförnum árum og fannst loðna nær ströndum Grænlands en áður hefur sést í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar á þessum slóðum.

Magn ungloðnu, sem myndar hrygningar- og veiðistofn á vertíðinni 2018/2019, var víðast hvar lítið og ekkert fannst úti fyrir Norðurlandi.

Bergmálsmælingar á stærð loðnustofnsins fóru fram á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundsyni 6. september til 9. október. Upprunalega var áætlað að leiðangrinum yrði lokið fyrir lok septembermánaðar. Umtalsverðar tafir urðu hins vegar vegna bilana beggja rannsóknaskipanna auk þess sem nokkrar tafir urðu vegna slæmra veðurskilyrða, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert