Nýtt viðvörunarkerfi Veðurstofunnar

Viðvörunarkerfið byggist á alþjóðlegum staðli sem kallast CAP (Common Alerting …
Viðvörunarkerfið byggist á alþjóðlegum staðli sem kallast CAP (Common Alerting Protocol) og er stafrænt snið fyrir miðlun neyðartilkynninga og viðvarana um náttúruvá. Veðurstofa Íslands

Veðurstofan tekur í notkun nýtt viðvörunarkerfi í dag. Helstu breytingar í útgáfu viðvarana verða þær að nýja kerfið tekur meira tillit til aðstæðna hverju sinni. Stakir veðurfarsþröskuldar verða úr sögunni, en það eru viðmið sem Veðurstofan hefur notað, svo sem 20 m/s fyrir vind og 100 mm úrkoma á 24 klst. Þau víkja nú fyrir viðmiðum sem taka tillit til árstíðar og aðstæðna í hverju tilviki fyrir sig.

Viðvörunarkerfið byggist á alþjóðlegum staðli sem kallast CAP (Common Alerting Protocol) og er stafrænt snið fyrir miðlun neyðartilkynninga og viðvarana um náttúruvá. Útgefin skeyti eru á þekktu, stöðluðu formi sem gerir alla miðlun viðvarana samræmda yfir mismundandi samskiptaleiðir og miðla. Hvert CAP-skeyti inniheldur upplýsingar um þá náttúruvá sem varað er við, landshluta sem viðvörunin nær til, gildistíma og mat á því hversu mikil áhrif umrædd vá getur haft á samfélagið. Fyrsta útgáfa kerfisins nær eingöngu til viðvarana vegna veðurs, en áætlað er að innan örfárra ára muni kerfið ná til allrar náttúruvár sem Veðurstofan vaktar.

Viðvaranirnar verða í litum; gulum, appelsínugulum og rauðum lit í samræmi við alvarleika væntanlegs veðurs. Litirnir eru að erlendri fyrirmynd (meteoalarm.eu) og hafa fjölmargar evrópskar veðurstofur  tekið þá í notkun. Rauðar viðvaranir eru hæsta stig og boða mikil samfélagsleg áhrif af veðri; gular viðvaranir eru lægsta stig þar sem annaðhvort samfélagsleg áhrif eru takmörkuð þó að miklar líkur séu á veðrinu, eða minni líkur á áhrifum mikils veðurs lengra fram í tíman.

Viðvörunarlitur ákvarðast af mati sérfræðinga á væntanlegum áhrifum veðursins og líkum á því að spáin gangi eftir. Samfélagsleg áhrif geta verið mismunandi, s.s. truflanir á samgöngum, eignatjón, skemmdir á mannvirkjum og líkur á slysum, jafnvel mannskaða. Viðbragðsaðilar verða hafðir með í ráðum um útgáfu viðvarana á efri stigum og má þar nefna Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Vegagerðina. Veðurfræðingar gefa frekari lýsingu á atburðinum í texta sem fylgir viðvöruninni. Áhrifatafla mun fylgja útgefinni viðvörun á vef Veðurstofunnar (sjá mynd).

Viðvaranir Veðurstofunnar verða birtar á vefjum stofnunarinnar. Viðvaranaskeyti verður hægt að nálgast í gegnum vefþjónustu Veðurstofunnar fyrir birtingu á öðrum miðlum og fréttaveitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert