Harpa stefnir Kára vegna 35 milljóna

Kári Sturluson.
Kári Sturluson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Sigur Rós og Harpa hafa rift samningum við félagið KS Productions sem er í eigu Kára Sturlusonar um tónleikahald hljómsveitarinnar í Hörpu í desember næstkomandi. Farið hefur verið fram á kyrrsetningu á eignum Kára og honum stefnt til greiðslu á 35 milljónum króna.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sigur Rós og Hörpu.

Sigur Rós leggur Hörpu undir sig milli jóla og nýárs.
Sigur Rós leggur Hörpu undir sig milli jóla og nýárs. Ljósmynd/Sigur Rós

Ástæðurnar fyrir þessu eru vandefndir tónleikahaldarans og trúnaðarbrestur vegna ráðstöfunar hans á hluta af miðasölutekju, sem hann óskaði eftir að yrðu leystar út, meðal annars vegna meints kostnaðar við undirbúning verkefnisins, að því er segir í yfirlýsingunni.

„Við riftun samnings, sem átti sér stað fyrir rúmum mánuði, átti tónleikahaldarinn ekki lengur réttmætt tilkall til miðasölutekna viðburðarins en hefur ekki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir beggja fyrrverandi samningsaðila hans, orðið við kröfum um endurgreiðslu á umræddum fjármunum,” kemur einnig fram.

„Til að tryggja hagsmuni Hörpu og Sigur Rósar hefur Harpa því farið fram á kyrrsetningu á eignum tónleikahaldarans til tryggingar kröfunni og stefnt honum til greiðslu á þeim 35 m.kr. af miðasölutekjum sem hann fékk greiddar. Er málið nú í farvegi hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.”

Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, segist í yfirlýsingunni treysta því að fjármunirnir verði endurgreiddir þar sem Kári sé ekki lengur aðili að verkefninu. „Aðgerðirnar sem Harpa og Sigur Rós hafa nú farið í eru til þess fallnar að tryggja það með öllum lagalega tiltækum ráðum.“

Harpa.
Harpa. mbl.is/Júlíus
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert