„Tungan fór alveg í tvennt“

Tunga mannsins fór í tvennt.
Tunga mannsins fór í tvennt. mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Konan, sem beit tunguna úr manni sínum í heimahúsi í Reykjavík í fyrrakvöld, beit tunguna alveg í tvennt. Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi staðfestir í samtali við mbl.is að sauma hafi þurft hlutann sem bitinn var af aftur á.

„Tungan fór alveg í tvennt,“ segir Guðmundur Páll.

Eins og fram kom í gær er óvíst hvort maðurinn nái fullum bata en um 30 spor voru saumuð í tungu mannsins og hann var útskrifaður af sjúkrahúsi. 

Fólkið er erlent en maðurinn vinnur hjá fyrirtæki hér á landi og kemur hann hingað til skamms tíma í einu. Ekki er talið að maðurinn hafi brotið gegn konunni og er málið rannsakað sem heimilisofbeldi. Stefnt er að því að ljúka rannsókn eins fljótt og auðið er en konan er í farbanni til loka nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert