Minningarathöfn í Hrísey í kvöld

Frá Hrísey.
Frá Hrísey. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Minningarathöfn verður haldin klukkan 18.00 í Hríseyjarkirkju í kvöld þar sem fjölskyldunnar sem fórst á Árskógs­sandi á föstudagskvöld verður minnst.

Talið er að for­eldr­ar með ungt barn hafi verið á leiðinni í Hrís­eyj­ar­ferj­una Sæv­ar þegar bíll þeirra fór í sjó­inn við ferju­bryggj­una síðdegis á föstudag með þeim af­leiðing­um að þau lét­ust. Ekki er unnt að greina frá nöfn­um þeirra að svo stöddu.

Sóknarpresturinn Magnús S. Gunnarsson segir marga í áfalli vegna atviksins en með honum í kvöld verði áfallateymi frá Rauða krossinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert