Bílvelta á Suðurlandsbraut

mbl.is

Jeppabifreið valt á Suðurlandsbraut í Reykjavík skammt frá Orkuhúsinu eftir að hún lenti í árekstri við aðra bifreið. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sjúkrabifreið send á staðinn en ekki þótti þörf á að flytja neinn á sjúkrahús.

Slysið átti sér stað skömmu fyrir klukkan sjö en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um aðdraganda þess. Snjór og úrkoma er á svæðinu sem gæti hafa átt hlut að máli. Lögreglan lokaði hluta Suðurlandsbrautarinnar um tíma á meðan unnið var á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert