Skylt að veita aðgang að eldri prófum

Háskóli Íslands hafði áður synjað beiðni nemanda um aðgang að …
Háskóli Íslands hafði áður synjað beiðni nemanda um aðgang að eldri prófum námskeiðsins. Sigurður Bogi Sævarsson

Háskóla Íslands er skylt að veita nemanda skólans aðgang að eldri prófum í námskeiði við skólann, að því er fram kemur í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sem kveðinn var upp 2. nóvember en birtur í gær. Skólinn hafði áður synjað beiðni nemandans þess efnis.

Um er að ræða eldri próf námskeiðs sem nefnist Örverufræði (LÍF201G), en kærandi fór fram á aðgang að prófunum í janúar síðastliðnum. Í apríl tók Háskóli Íslands afstöðu í málinu og var kæranda synjað um aðgang að prófunum, með tilvísun til upplýsingalaga er varða undanþágu á upplýsingarétti vegna almannahagsmuna.

Í umsögn Háskóla Íslands kom fram að fyrirkomulag prófsins væri með þeim hætti að stór hluti spurninganna hefði áður verið lagður fyrir, sumar oft áður og að mörgum sé aðeins lítillega breytt milli ára. Því myndi aðgangur að eldri prófum í námskeiðinu hafa það í för með sér að próf í námskeiðinu næðu ekki tilætluðum árangri eða yrðu þýðingarlaus.

Þessar röksemdir Háskóla Íslands féllst úrskurðarnefndin ekki á og í úrskurði segir:

„Í umsögn Háskóla Íslands er því ekki haldið fram að nákvæmlega sama prófið sé lagt fyrir ár hvert í námskeiðinu heldur hafi hluti spurninganna verið notaður áður og verði notaður aftur í framtíðinni. Af þeim sökum er ekki unnt að fallast á það með skólanum að með því að veita aðgang að eldri prófum í námskeiðinu verði síðari próf þýðingarlaus eða skili ekki tilætluðum árangri.“

Því var úrskurðurinn sá að Háskóla Íslands ber að veita kæranda aðgang að eldri fyrirliggjandi prófum í námskeiðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert