Strætisvagn keyrði aftan á vörubíl

mbl.is/Hari

Töluvert harður árekstur varð nú rétt rúmlega tólf á Reykjanesbraut, fyrir neðan Blesugróf í Reykjavík, þegar strætisvagn keyrði aftan á vöruflutningabíl. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu í Reykjavík voru tveir fluttir á sjúkrahús, bílstjórinn og farþegi í vagninum. Þeir munu þó ekki vera alvarlega slasaðir. Aðrir farþegar munu vera ómeiddir.

Ekki er vitað um tildrög slyssins að svo stöddu, eða hvort vörubíllinn var kyrrstæður þegar slysið átti sér stað. Pallurinn á bílnum gekk að einhverju leyti inn í strætisvagninn að framan og er hann því mikið skemmdur.

mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert