Það var skemmtilegt verkefni að leiða saman hóp listamanna til að koma fram listahátíðinni Norður og niður, að sögn Georgs Hólm, tónlistarmanns í Sigur Rós. „Það er fullt af listamönnum þarna sem ég er mjög spenntur fyrir því að sjá.“
mbl.is ræddi við Georg um hátíðina sem verður stór í sniðum og í raun ein sú stærsta á árinu hér á landi. Þetta er í takt við þróun í tónlistariðnaðinum þar sem viðburðir af þessu tagi verða sífellt fyrirferðameiri.
Hljómsveitin valdi sjálf listamennina sem koma fram á hátíðinni og af þeim segist Georg vera hrifinn af Mogwai og Alexis Taylor úr bresku hljómsveitinni Hot Chip.
Hægt er að kynna sér hátíðina og dagskrá hennar hér.