Tvær bílveltur í Norðurárdal

mbl.is/Ófeigur

Tvær bílveltur urðu í Norðurárdal nú í kvöld. Bæði óhöppin áttu sér stað í nágrenni við bæinn Dýrastaði á áttunda tímanum í kvöld með um kílómetra millibili. Engin slys urðu á fólki.

Annar ökumaðurinn missti stjórn á bíl sínum í snjó og hálku og fór bíllinn við það út af veginum.

Hinn ökumaðuinn missti stjórn á bíl sínum er hann ók inn í skafl með þeim afleiðingum að hann lenti á bifreið sem var að koma akandi úr gagnstæðri átt. Var bíllinn óökuhæfur eftir áreksturinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert