Að staldra við og njóta augnabliksins

Ragnheiður Arngrímsdóttir.
Ragnheiður Arngrímsdóttir. mbl.is/Hari

Gefðu þér tíma til að upplifa og taka eftir er þema ljósmyndaviðburðar Ragnheiðar Arngrímsdóttur listljósmyndara sem opnuð verður kl. 15 sunnudaginn 26. nóvember í Klíníkinni, Ármúla 9. Hún kýs fremur að tala um viðburð eða upplifun en sýningu, enda verði stemningin með allt öðrum brag en á þeim fjórum einkasýningum sem hún hefur haldið í áranna rás.

„Hægt er að taka ljósmyndir á marga vegu og í mismunandi tilgangi. Erlendis tíðkast meira en hér á landi að fólk kaupi ljósmyndir sem listaverk á vegg. Viðhorfin hafa þó breyst og Íslendingar eru í vaxandi mæli að opna augun fyrir að ljósmyndin getur verið listaverk. Í gegnum tíðina hef ég yfirleitt selt mörg eintök af myndunum mínum en núna ætla ég að taka fyrsta skrefið í þá átt að bjóða þær eins og listaverk og geri því aðeins örfá eintök af hverri,“ segir Ragnheiður.

Kjarninn sem skiptir máli

Ljósmyndirnar eru nánast splunkunýjar, átta talsins, flestar um 1.20x80 cm, unnar með margs konar tækni og teknar gagngert fyrir viðburðinn. Ragnheiður segir hugmyndina að ljósmyndasyrpunni eiga rætur að rekja til hraðans í þjóðfélaginu, en innblásturinn sé aftur á móti andstæða hans; friðsældin.

„Í erli dagsins þeytist lífið áfram á ógnarhraða og mitt í allri ringulreiðinni þurfum við að finna þann kjarna sem skiptir okkur mestu máli og gleður okkur,“ segir Ragnheiður um pælingarnar að baki ljósmyndunum.

Sjálf kveðst hún undir sömu sök seld og flestir að gleyma að staldra við, skoða í kringum sig og njóta augnabliksins. „Sumar myndirnar eru bjartar og draumkenndar, aðrar tók ég á dimmum stað, en þá beitti ég til dæmis þeirri tækni að smella mörgum sinnum af ljósum og fá þannig hreyfingu í myndina. Stundum hafði ég ljósopið opið í smátíma til að myndefnið væri ekki í fókus, svolítið órætt og kallaði fram mismunandi tilfinningar hjá áhorfandanum.“

Ragnheiður segir að í sínum huga marki ljósmyndirnar á sýningunni ákveðið upphaf. Þær séu partur af uppgjöri hennar við hið liðna, nokkurs konar sjálfskoðun því ýmsir erfiðleikar hafi steðjað að sem hafi kennt henni að meta það sem skiptir máli betur en ella. „Eins og bara gerist og gengur í lífinu. Það skiptast á skin og skúrir,“ segir hún og fer ekki nánar út í þá sálma.

Hliðarsýning á chromolux-ljósmyndum

Ragnheiður starfaði í þrettán ár sem flugmaður og flugkennari, síðustu árin hjá Atlanta-flugfélaginu. Eftir að hún eignaðist yngsta son sinn af þremur sneri hún við blaðinu, keypti sér alvöruljósmyndavél og lærði listljósmyndun, fyrst í NYIP, New York Institude of Photography, og síðar Ljósmyndaskóla Íslands. Hún hefur verið sjálfstætt starfandi ljósmyndari frá árinu 2012, en þá gaf hún út ljósmyndabókina Fólkið í landinu og hefur haldið fjölda námskeiða í ljósmyndun.

Á annarri hæð Klíníkurinnar sýnir Ragnheiður samhliða á annan tug ljósmynda, sem unnar eru með chromolux-tækni, sem felst í að brenna myndirnar í álplötur. Þær ljósmyndir eru til sýnis á vegum sprotafyrirtækisins Fantoma images, sem hún stofnaði fyrir ári ásamt Evu Magnúsdóttur.

Ljósmyndaviðburður Ragnheiðar í Klíníkinni stendur yfir í viku. Opið alla daga frá 11-19 og allir velkomnir.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert