Nafn mannsins sem lést á Miklubraut

mbl.is/Sverrir

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Miklubraut í Reykjavík á laugardag hét Sebastian Dariusz Bieniek.

Sebastian, sem var 24 ára, var pólskur ríkisborgari að því er segir í fréttatilkynningu frá lögreglunni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka nú tildrög slyssins.

Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að slysinu að hafa samband í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið gudmundur.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert