Siglir Baldur ekkert meira á árinu?

mbl.is/Sigurður Bogi

Eftir vinnu undanfarna daga er það mat sérfræðinga að nauðsynlegt sé að taka vélina úr Breiðafjarðaferjunni Baldri og flytja hana á verkstæði Framtaks. „Nú eru aðeins eru 5 vikur til áramóta og getur staðan orðið sú að Baldur sigli ekki meira það sem eftir lifir árs,“ segir á vef Sæferða.

Þar segir ennfremur að ekki hafi reynst mögulegt að slípa sveifarás vélarinnar um borð og tryggja að hann yrði í lagi þannig eins og stefnt var að. Þetta geri það að verkum að lengri tími muni líða áður en Baldur getur hafið siglingar aftur. Tekið er fram einhver tími mun sparast við samsetningu.

„Nú eru aðeins eru 5 vikur til áramóta og getur staðan orðið sú að Baldur sigli ekki meira það sem eftir lifir árs. Unnið verður af fullum krafti að viðgerð en eins og áður segir er um flókið verk er að ræða og munu verða sendar út tilkynningar um leið og nánari tímasetningar liggja fyrir. 

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert