Flugdólgur grýtti áfengisflöskum

Vélin var frá ungverska flugfélaginu Wizz Air að sögn lögreglu.
Vélin var frá ungverska flugfélaginu Wizz Air að sögn lögreglu.

Lögregla var nýverið kvödd á vettvang við lendingu flugvélar á Keflavíkurflugvelli eftir að drukkinn farþegi hafði grýtt áfengisflöskum í áhöfnina á leiðinni hingað til lands.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum, að vélin hafi verið frá ungverska flugfélaginu Wizz Air.

„Umræddur farþegi hafði verið með dónaskap og leiðindi í fluginu og drukkið sitt eigið áfengi úr plastflöskum. Þegar áhöfnin ætlaði að hafa afskipti af honum reiddist hann og kastaði flöskunum að henni. Lögregla ræddi við manninn og var þá úr honum allur vindur. Ekki er vitað hvort flugfélagið kærir hann fyrir athæfið,“ segir í tilkynningu lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert