Einn heppinn lottóspilari sem keypti sér lottómiða í Bitanum í Keflavík var með allar tölurnar réttar í Lottóútdrætti kvöldsins. Fær hann rúmlega 7,7 milljónir í sinn hlut.
Einn var með bónusvinninginn og hlýtur hann 339.730 krónum en miðinn var keyptur í Hamraborg á Ísafirði.
Enginn var hins vegar með allar tölurnar réttar í Jókernum að þessu sinni.