Bifreið brann í Kömbunum

Frá aðgerðum á vettvangi í morgun.
Frá aðgerðum á vettvangi í morgun. Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu

Eldur kviknaði í bifreið í Kömbunum á tíunda tímanum í morgun. Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu í Hveragerði fóru á vettvang og slökktu eldinn. Ökumaður var einn í bifreiðinni þegar að eldurinn kom upp og varð honum ekki meint af.

Bíllinn er mikið skemmdur en brann þó ekki að öllu leiti. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafkerfi bílsins, að því er segir í færslu Brunavarna Árnessýslu á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert