Svindlarar eru sagðir nota nú nafn Símans til að falast eftir greiðslukortaupplýsingum fólks með ósannindum um endurgreiðslu. Í fréttatilkynningu sem Síminn hefur sent frá sér um málið eru þeir viðskiptavinir sem fengið hafa póstinn beðnir um að hafa varann á. Þá er einnig bent á að Síminn biðji aldrei um svo viðkvæmar persónuupplýsingar með þessum hætti
„Síminn hefur gripið til víðtækra varna til að vernda viðskiptavini fyrir þessum vefveiðum. Lokað hefur verið á lendingarsíður í tölvupósti svindlaranna hjá viðskiptavinum Símans. Hafi viðskiptavinir annarra fjarskiptafélaga fengið póstinn bendum við þeim á að vara sig.
Póstarnir nú eru áþekkir þeim sem gengu fyrr á árinu í nafni Símans og harmar félagið að nafn þess sé misnotað með þessum hætti,“ segir í tilkynningunni.
Síminn bendir enn og aftur á að það sé skýr regla fyrirtækisins að biðja ekki undir neinum kringumstæðum um greiðslukortanúmer í tölvupósti.
„Síminn hefur upplýst netöryggissveit yfirvalda, Cert-Ís, um póstana. Öryggisteymi Símans fylgist með framvindunni í náinni samvinnu við hana.“