Spáð er allt að 12 stiga frosti á morgun en bæði í dag og á morgun er spáð björtu veðri víða. Á laugardag gengur í suðaustan með slyddu og síðar rigningu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
„Norðan 5-13 m/s í dag. Léttskýjað sunnan- og vestanlands, en dálítil él á Norður- og Austurlandi. Kólnandi veður.
Hægari vindur og bjart veður á morgun, þó áfram él við norðausturströndina. Frost 1 til 12 stig, mest í innsveitum.
Gengur í suðaustan 10-15 m/s með slyddu og síðar rigningu á laugardag. Úrkomulítið norðaustanlands og minnkandi frost.
Á sunnudag er útlit fyrir suðvestanátt með éljum vestantil á landinu, en léttir til um landið austanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Norðan 5-13 m/s í dag. Víða léttskýjað S- og V-lands, annars dálítil él.
Kólnandi, frost 1 til 8 stig síðdegis.
Hægari og bjart veður á morgun, en él við NA-ströndina fram eftir degi.
Á föstudag:
Hæg norðlæg átt og bjartviðri, en skýjað og dálítil él NA-til. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum.
Á laugardag:
Vaxandi suðaustanátt, 10-15 m/s og slydda eða rigning á S- og V-landi síðdegis, en dálítil snjókoma NA-lands um kvöldið. Hlýnandi veður.
Á sunnudag:
Suðvestanátt og él, en léttir til um landið A-vert. Hiti um og undir frostmarki.
Á mánudag:
Sunnanátt og milt veður. Rigning, einkum S- og V-lands.
Á þriðjudag:
Suðvestanátt og skúrir eða él, en léttir til á NA- og A-landi. Heldur kólnandi.
Á miðvikudag:
Suðvestanátt með slyddu eða rigningu og síðar éljum, en úrkomulítið NA-lands.