Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir brasilískum karlmanni á þrítugsaldri, en hann hlaut þriggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Var manninum gefið að sök að hafa, í mars á þessu ári, staðið að innflutningi á samtals 1.950 ml af kókaíni sem hafði 69% styrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.
Fíkniefnin flutti ákærði til Íslands, sem farþegi með flugi frá Amsterdam í Hollandi til Keflavíkurflugvallar, og fundu tollverðir þau í fjórum brúsum undir snyrtivörur í farangri ákærða við komu hans til Keflavíkurflugvallar.
Ákærði neitaði sök í málinu en framburður hans við yfirheyrslur tók breytingum. Í fyrstu sagðist hann hafa komið hingað til lands sem ferðamaður og að hann væri ljósmyndari. Hann kvaðst ætla að fara á snjóbretti, í Bláa lónið og skoða norðurljósin og hvali. Hann neitaði því að hafa vitað af fíkniefnum sem fundust í ferðatösku hans, en efnin voru falin í brúsum fyrir munnskol, sápu, krem og tannkrem.