Veginum um Heiðmörk hefur verið lokaður vegna mikillar hálku. Þetta kemur fram í Twitter-færslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en lögreglan stendur fyrir Twitter-maraþoni fram eftir nóttu.
Voru nokkrir bílar fastir á veginum vegna hálkunnar, en búið er nú að sanda og ná þeim burt.
Borgin ákvað þó að loka veginum.
Var Heiðmerkurvegi lokaður við Suðurlandsveg og er einnig lokaður við Maríuhella í Garðabæ vegna mikillar ísingar, en þónokkur fjöldi ökumanna lenti þar í vandræðum í dag.
Segir í tilkynningu frá lögreglu að vegurinn verði opnaður strax í fyrramálið og að hann verði þá sandaður og saltaður.
Hafravatnsvegur frá Nesjavallaleið og norður úr er einnig mjög háll og hafa ökumenn einnig lent í vandræðum þar, en veginum hefur þó ekki verið lokað. Er saltbíll frá Reykjavíkurborg sagður á leið þangað svo ökumenn komist í burtu.
Fréttin hefur verið uppfærð.