Ók á 180 fram úr lögreglubíl

Maðurinn sagðist ekki hafa séð að hann var að aka …
Maðurinn sagðist ekki hafa séð að hann var að aka fram úr lögreglubifreið. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Lögrelgan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni ökumann sem ók Reykjanesbrautina á 180 kílómetra hraða. Lögreglumenn voru við umferðareftirlit þegar bifreiðinni var ekið á miklum hraða fram úr lögreglubifreiðinni. Ökumaður hennar, sem er á þrítugsaldri, kvaðst í viðræðum við lögreglumenn hafa verið á 180 km hraða þegar hann ók fram úr þeim, en ekki hafa séð að hann var að aka fram úr lögreglubifreið.

Hámarkshraði á umræddum vegarkafla er 90 km á klukkustund. Ökumannsins bíður ákæra og dómur, að kemur fram í tilkynninu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þá var nokkuð um umferðaróhöpp í umdæminu í vikunni sem flest mátti rekja til hálku á vegum. Þau voru ekki stórvægileg og engin alvarleg slys á fólki. Þó valt bifreið út af Garðvegi og endaði á toppnum. Ökumaður slapp ómeiddur. Mikil hálka var á veginum og dekkjabúnaður bifreiðarinnar ekki sem skyldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert