Mikil umferðaraukning síðan 2012

Minni auking varð á umferðinni í desember að þessu sinni en fyrir ári samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Engu að síður jókst umferðin mikið eða um 9,3% en fyrir ári var aukningin 10,6% sem var sú næstamesta frá því samantekt á því hófst 2005.

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að undanfarin ár, eða síðan 2012, hafi umferðin aukist tvöfalt meira en að meðaltali síðan 2005 eða um 7,6 prósent meðan meðaltalið á ári yfir allt tímabilið hafi verið 3,4 prósent. Mest hafi umferð aukist um teljarasnið á Suðurlandi eða um 16,1% en minnst um snið á Austurlandi eða um 4,3%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka