Starfshópur um traust á stjórnmálum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forsætisráðherra hefur skipað starfshóp um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Vísað er í stjórnarsáttmálann þar sem segir meðal annars: 

„Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórnmálum og stjórnsýslu. Einn þáttur í því er að yfirfara reglur um hagsmunaskráningu bæði ráðherra og þingmanna með hliðsjón af ábendingum og alþjóðlegum viðmiðum. Annar þáttur er breytingar á lögum sem varða vernd uppljóstrara og umbætur í umhverfi stjórnsýslu og viðskipta, meðal annars í takt við ábendingar alþjóðastofnana.“

Hópnum er ætlað að taka mið af starfi sem unnið hefur verið í tengslum við opinber heilindi hérlendis og erlendis. Til dæmis væntanlegri fimmtu úttektarskýrslu GRECO sem fjallar meðal annars um vernd gegn spillingu meðal æðstu handhafa framkvæmdavalds. Starfshópurinn á að skila skýrslu um störf sín ekki síðar en 1. september á þessu ári en telji hann ástæðu til getur hann einnig sett fram afmarkaðar tillögur fyrr.

Jón Ólafsson prófessor verður formaður hópsins. Aðrir í hópnum eru Ólöf Embla Eyjólfsdóttir, MSt í heimspeki, Páll Þórhallsson skrifstofustjóri, Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri og Sigurður Kristinsson prófessor.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert