Kjartan mun aðstoða Eyþór

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðirflokksins.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðirflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi hefur tekið að sér að vera pólitískur ráðgjafi Eyþórs Arnalds, borgarstjóraefnis Sjálfstæðisflokksins, fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðiflokknum kemur fram að verði Eyþór borgarstjóri að loknum kosningum, mun Kjartan verða aðstoðarmaður hans í því embætti.

„Kjartan er að góðu kunnur innan Sjálfstæðisflokksins og hefur verið borgarfulltrúi fyrir flokkinn um langt árabil. Fáir þekkja því betur til málefna borgarinnar,“ segir í tilkynningu flokksins. 

Þá hefur Janus Arn Guðmundsson stjórnmálafræðingur verið ráðinn framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Starfið felst í alhliða þjónustu við borgarfulltrúa sem og frambjóðendur flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert