Stefán Jón kveður Afríku

Stefán Jón Hafstein yfirgefur nú Afríku.
Stefán Jón Hafstein yfirgefur nú Afríku. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Stefán Jón Hafstein, sem hefur búið og starfað í Afríku síðastliðinn áratug, nú síðast á sendiskrifstofu Íslands í Úganda, segir nú komið að því að kveðja álfuna. „Allar leiðir liggja til Rómar,“ skrifar Stefán í kveðjubréfi sínu, en þangað er hann nú kominn til að taka við starfi fastafulltrúa Íslands hjá nokkrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna.

„Síðustu 10 ár hef ég lifað og starfað í Afríku næstum samfellt og nú er komið að kveðjustund. Margs vísari og mikið breyttur maður, stundum vonandi til batnaðar, þökk sé því góða fólki sem ég kynntist,“ skrifar Stefán Jón. 

Í bréfinu, sem hann sendi mbl.is í morgun, rifjar hann upp störf sín í álfunni sem David Attenborough kallaði „stórkostlegasta sjónleik móður náttúru sem settur hefur verið á svið hér á jörð“. 

Hér má sjá um mínútu langt myndskeið af dvöl Stefáns í Úganda. Greinin heldur áfram fyrir neðan myndskeiðið.

Fyrst fór Stefán til starfa í Namibíu. „Namibía var fyrst með heitum eyðimörkum, mannlífi sem berst í bökkum þar sem kalla mætti endamörk veraldar en er í raun upphaf heimsins:  Gondwanalandið sem klofnaði upp í meginlönd og álfur sem fóru á rek um úthöfin. Þar er elsta planta í heimi, meira en þúsund ára, á hörðum og vatnslausum mel.“

Þar kom hann m.a. að rekstri stórs vatnsverkefnis í Kalahari-eyðmörkinni. 

Næst var förinni heitið til hins „fátæka og fagra“ lands Malaví. „Dásamlegar sveitirnar, brosmilda fólkið, UNESCO verndarsvæðið undir yfirborði Malavívatns sem er meira en 700 metra djúpt og geymir 1000 fiskitegundir. Eða hásléttan sem rís hærra en Öræfajökull og sér hjörðum antilópa fyrir beitarlandi, þar sem 300 tegundir af orkideum blómstra og fuglafjöld fyllir loftið af söng og flögri,“ eins og hann lýsir Malaví í bréfi sínu.

„Í Malaví byggðum við Íslendingar myndarlegt sveitarsjúkrahús, heilsugæslustöðvar og senn verður tekin í notkun stór fæðingardeild sem annar milljón manna héraði. Þar er mæðradauði ógnarlegur, en með tilstyrk okkar hefur stórlega dregið úr.  Það er sannarlega lofsverður árangur. Og vatnsbólin sem við styrkjum bæta heilsufar merkjanlega hjá örsnauðu sveitafólki.“

Stefán vann svo heima á Íslandi um hríð við árangursmat þróunarverkefna og kynntist þá Úganda, þar sem hann hefur svo starfað síðustu þrjú árin. „Landið við miðbaug þar sem er ein mesta fátækt í heimi, meira en helmingur fjörutíu milljóna manna er undir 18 ára aldri.  Hér hefur mér fundist nauðsynlegt og best að vinna að menntun allra þessara barna.“ 

Hann segir að Íslendingar geti verið stoltir af betri skólum, kennsluefni, kennaraþjálfun og foreldrafélögum. Verkefnin stuðli að bættum árangri í skólum þar sem er 70% brottfall áður en börnin ná 12 ára aldri og drjúgur hluti nemenda er vannærður stóran hluta ársins.  „Árangur nemenda á samræmdum prófum í þeim skólum sem við styðjum batnar ár frá ári og er forsíðuefni blaða.“ 

Fyrsta útskriftin

Um daginn lauk tilraunaverkefni við bændaskóla í eyjum úti á Viktoríuvatni. „Þar höfum við stutt barnaskóla með góðum árangri, en ákváðum að reyna að ná til brottfallsnemenda sem ekkert hafa lært. Í samvinnu við landbúnaðarskólann styrktum við verkefni 120 ungmenna sem lærðu að rækta svín og alifugla.  Útskriftin var glæsileg og stolt fengu þau viðurkenningarskjöl. Fólk sem aldrei átti von á að ljúka neinu námi eða kunna eitthvað gagnlegt.“ 

Stefán Jón hefur miðlað reynslu sinni til um 400 þúsund innlitsgesta á heimasíðu sinni, stefanjon.is, á síðustu tíu árum. Þá skrifaði hann og gaf út bókina, Afríka, ást við aðra sýn. 

„Og núna man ég ýmislegt sem ég sá ekki á þessum ferli, en saman raðast í mynd sem er hlý og góð eins og morgunsólin sem rís á sléttum Afríku og yljar antilópum á beit. Þetta er minning sem er björt eins og brosin sem mæta manni.“


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert