Vöknuðu upp með andfælum við innbrotsþjóf

Enn ein tilraun til innbrots var gerð á heimili í …
Enn ein tilraun til innbrots var gerð á heimili í Garðabæ í nótt. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hjón sem búsett eru við Engimýri í Garðabæ vöknuðu upp með andfælum klukkan fjögur í nótt við að öryggiskerfi heimilisins fór í gang. Hjónin fengu sér öryggiskerfi fyrir tæpum tveimur mánuðum, meðal annars vegna þeirrar innbrotahrinu sem er nú á höfuðborgarsvæðinu. Það margborgaði sig svo sannarlega.

„Ég sá í appinu á símanum að hreyfiskynjarinn í bílskúrnum hafði farið af stað,“ segir konan sem býr í húsinu en kýs að koma ekki fram undir nafni. Hjónin eru með svokallað snjallöryggiskerfi frá Öryggismiðstöðinni, sem er með myndavélum og hreyfiskynjurum sem er beintengt við app í símanum.

Að vísu er ekki myndavél í bílskúrnum, en hreyfiskynjarinn gerði sitt gagn. „Ég hélt fyrst að þetta væri vindurinn, eða köttur, mér datt ekki innbrotsþjófur strax í hug,“ segir konan.  

Hjónin fóru fram í forstofu, berfætt og á náttfötunum, og þegar þau opnuðu útidyrahurðina sáu þau að bílskúrshurðin var opin. Stuttu seinna skaust maður út um hurðina.

„Hann þaut í burtu og ég öskraði eitthvað á eftir honum,“ segir konan. Stuttu seinna kom starfsmaður Öryggismiðstöðvarinnar á svæðið. Hjónin ákváðu að tilkynna innbrotið til lögreglunnar. „Ég gat svo sem ekki lýst miklu en hann var í mjög spes úlpu, svartri með hvítum röndum, svo ég hugsaði að það væri að minnsta kosti eitthvað,“ segir konan.

Fylgdist með þeim úr fjarlægð

Á meðan hún talaði við lögregluþjón í símann var henni litið út um gluggann og sá þá manninn standa í nokkurri fjarlægð frá húsinu og virtist hann fylgjast grannt með stöðu mála. „Mér dauðbrá auðvitað, en þetta var sama úlpan, svört með hvítum röndum.“ Lögreglan sendi bíl að húsinu þegar í stað en maðurinn lét sig hverfa rétt áður en lögreglan kom á vettvang.

Síðustu vikur hefur fjöldi innbrota og innbrotstilrauna verið gerðar á höfuðborgarsvæðinu og í síðustu viku voru fjór­ir ein­stak­ling­ar úr­sk­urðaðir í gæslu­v­arðhald vegna inn­brots­mála, tveir  vegna innbrots í Garðabæ og tveir vegna inn­brots í Hafnarfirði.

Frétt mbl.is: „Nokkrir hópar sem eru að herja á okkur“

„Það er svo sannarlega óskemmtileg reynsla að vakna upp við að einhver er að reyna að brjótast inn til manns en sem betur fer fór hann ekki inn í húsið og náði ekki að taka neitt með sér,“ segir konan. Öryggiskerfið gerði sitt gagn en þakklátust eru hjónin samt fyrir það að börnin fjögur á heimilinu vöknuðu ekki við öll lætin.

Hjónin hafa ekki heyrt frá lögreglunni aftur en búast við að fá fréttir af stöðu mála á morgun. Málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert