Ráðherrar birta úr dagbókum sínum

Ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur munu frá og með deginum …
Ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur munu frá og með deginum í dag birta yfirlit úr dagbókum sínum. mbl.is/​Hari

Ráðherrar munu birta yfirlit úr dagbókum sínum frá og með deginum í dag, en þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu kemur fram að við undirbúning málsins hafi verið leitað fyrirmynda, einkum á Norðurlöndunum og í Bretlandi.

Hver og einn ráðherra mun meta hversu miklar upplýsingar verða birtar um dagskrá hverrar viku, en stiklað verður á stóru í dagskrá ráðherra. Að meginstefnu er gert ráð fyrir að upplýsingar birtist um eftirfarandi: 

  • Formlega fundi sem boðað er til með dagskrá eða þar sem ráðherra tekur á móti fulltrúum félagasamtaka og stofnana
  • Formlega hádegisverði
  • Viðburði þar sem ráðherra heldur erindi eða ávarp
  • Fundi með fulltrúum erlendra ríkja (áður ótaldir)
  • Stærri viðtöl við fjölmiðla sem ákveðin eru með nokkrum fyrirvara

Dagbækurnar má finna á undirsíðu undir hverjum og einum ráðherra á vef Stjórnarráðsins.

Þegar þetta er birt hefur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ein birt yfirlit úr dagbók sinni. Nær það bæði til þessarar viku og þeirrar síðustu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert