Svæði á Skógaheiði lokað

Svæðið á Skógaheiði.
Svæðið á Skógaheiði. Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Umhverfisstofnun hefur gripið til skyndilokunar svæðis á Skógaheiði vegna aurbleytu frá og með morgundeginum, 24. mars.

„Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir náttúruvættið Skógafoss dag hvern og gengur stór hluti þeirra upp á Skógaheiði. Vegna hlýinda og mikillar vætu síðustu daga er álag á gönguslóða og umhverfi hans á Skógaheiði ofan Fosstorfufoss gríðarlegt,“ segir í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.

Þar kemur fram að svæðið sé hluti af gönguleið um Fimmvörðuháls og hefst lokunarsvæðið þar sem malarstígur endar, um 650 metra frá útsýnispalli ofan við Skógafoss.

„Umhverfisstofnun hefur gripið til þess ráðs að loka svæðinu vegna aurbleytu frá og með morgundeginum, 24. mars, uns bót verður á. Lokunin er annars vegar framkvæmd af öryggisástæðum og hins vegar til að vernda gróður umhverfis gönguslóðann.

Stefnt er að því að endurskoða lokunina eigi síðar en innan tveggja vikna eða fyrr ef ástand breytist. Lokunin er samkvæmt 25 gr. laga um náttúruvernd.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka