Örninn braggaðist ekki og var svæfður

Haförninn sem Snorri Rafnsson, betur þekktur sem Vargurinn, handsamaði í lok nóvember og hefur undanfarna mánuði verið í Húsdýragarðinum, var svæfður nú um mánaðarmótin eftir að hafa ekki náð heilsu á ný. Þetta staðfestir Kristinn Haukur Skarphéðinsson, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, en Snorri greindi frá afdrifum fuglsins á Snapchat fyrr í dag. mbl.is ræddi við Snorra á síðasta ári eftir að hann handsamaði fuglinn, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

Kristinn segir að haförninn hafi fyrst um sinn verið nokkuð hress og að útlitið hafi verið ágætt. Hann hafi hins vegar aldrei flögrað eða flogið og þegar reynt var að sleppa honum til að fara lengri vegalengdir hafi komið í ljós að líklega myndi hann ekki spjara sig í náttúrunni á ný.

Haförninn þegar Snorri afhenti hann Húsdýragarðinum.
Haförninn þegar Snorri afhenti hann Húsdýragarðinum. mbl.is/Árni Sæberg

Í apríl dró svo verulega af erninum og varð hann að sögn Kristins mjög máttlaus. „Það var ekki hægt að fara í neinar meiriháttar læknisfræðilegar aðgerðir,“ segir hann og bætir við að það hafi verið metið að hann myndi ekki bjarga sér. Með það fyrir augum var ákvörðun um að svæfa hann tekin. Aldrei hafi komið til tals að koma honum í einhverskonar langtíma athvarf eins og tíðkast stundum erlendis með veik dýr. Það hafi ekki tíðkast hér á landi.

Segir Kristinn að mögulega hafi fuglinn lent í slysi sem skýri ástand hans.  

Hafern­ir eru nokkuð sjald­gæf­ir fugl­ar hér á landi, en þeir hafa verið alfriðaðir í ára­tugi. Þegar eitrað var fyr­ir ref­um hér á árum áður gekk það nokkuð nærri stofn­in­um, en í dag tel­ur hann 75 varppör. Tvö af hverjum þremur varppörum verpa við Breiðafjörð, en önn­ur pör sé meðal ann­ars að finna á Vest­fjörðum, við Húna­flóa og á nokkr­um stöðum á Vest­ur­landi

Hvert par verp­ir einu eggi og stund­um tveim­ur. Hver varpárgangur er frekar lélegur því aðeins 25-30 pör komu upp ung­um á hverju ári. Ung­arn­ir eru oft á tíðum vel fram á vet­ur í óðali for­eldr­anna og segir Kristinn að algengt sé að þeir séu undir verndarvæng þeirra fram í mars.

Snorri og örninn í nóvember.
Snorri og örninn í nóvember. Ljósmynd/Snorri Rafnsson

Í tilfelli þessa hafarnar hafi hann hins vegar verið kominn langt frá heimahögunum strax í október.

Fyrsti vetur hafarna getur reynst mjög erfiður og eru töluverð afföll að sögn Kristins. Þannig hafi Náttúrufræðistofnun nýlega frétt af öðrum haferni sem fannst dauður í hólmanum þar sem hann ólst upp. Var sá örn samt sem áður orðinn fleygur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert