Stefnt er að því að fræsa báðar vinstri akreinar á Sæbraut, frá gatnamótum Kringlumýrarbrautar að gatnamótum við Katrínartún, í dag.
Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt fram hjá. Einnig er stefnt að því að fræsa hægri beygjuakrein frá Sæbraut að Kringlumýrarbraut. Búast má við lítils háttar umferðartöfum milli kl. 9:00 og kl. 17:00, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.