Fimm lögreglumenn til Rússlands

Fimm lögregluþjónar verða sendir til starfa til Rússlands vegna heimsmeistaramótsins …
Fimm lögregluþjónar verða sendir til starfa til Rússlands vegna heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Fimm íslenskir lögreglumenn verða sendir til starfa í Rússlandi á meðan heimsmeistaramótið í knattspyrnu stendur yfir. Tveir koma til með að starfa í alþjóðlegri stjórnstöð löggæslu í Moskvu og þrír munu fylgja íslenska landsliðinu á þá staði sem Ísland keppir á og fylgja rússneskum lögreglumönnum við eftirlit í kringum stuðningsmannasvæði og leikvang.

Í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra kemur fram að hlutverk lögreglumannanna verði að aðstoða rússnesk yfirvöld við að halda uppi öryggi á meðan á mótinu stendur þannig að upplifun stuðningsmanna verði sem ánægjulegust fyrir alla.

Ríkislögreglustjóri mun verða í nánu og góðu samstarfi við utanríkisráðuneytið, sendiráð Íslands í Moskvu, Tólfuna og KSÍ við að safna og miðla gagnlegum upplýsingum til stuðningsmanna. Í þessum tilgangi mun ríkislögreglustjóri vera virkur á samfélagsmiðlum en þar verður upplýsingum miðlað til stuðningsmanna,“ segir í tilkynningu.

Upplýsingar verða aðallega birtar á Facebook síðu embættisins og hægt verður að vera í sambandi við lögreglumenn í stjórnstöð í gegnum þá síðu til að senda fyrirspurnir eða koma ábendingum á framfæri. 

Þá verður einnig haldið úti Instagram síðu þar sem birtar verða myndir frá starfi lögreglumannanna í stjórnstöð og í kringum stuðningsmannasvæði og leikvanga. Jafnframt verður Twitter notað til að koma skilaboðum áleiðis.  Þeir sem eru á leið til Rússlands eru hvattir til að gerast áskrifendur að þessum síðum og fylgjast náið með því sem þar verður birt.

Svæði ríkislögreglustjóra á samfélagsmiðlum má finna hér að neðan:

Facebook-síða ríkislögreglustjóra: https://www.facebook.com/rikislogreglustjorinn

Instagram-rekningur: https://www.instagram.com/rikislogrstj

Twitter-aðgangur: https://twitter.com/rikislogrstj eða @rikislogrstj

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert