„Þeir eru bara hérna“

Björgunarsveitarfólk að störfum í Kolgrafafirði.
Björgunarsveitarfólk að störfum í Kolgrafafirði. mbl.is/Alfons Finnsson

Grind­hvala­vaðan sem björg­un­ar­sveit­ar­menn ráku úr Kolgrafaf­irði í gær kom aftur inn fjörðinn í morgun og hefur haldið sig þar í dag. Ekki er búið að ákveða hvort þeir verði reknir úr firðinum í kvöld.

„Þeir eru bara hérna,“ segir Einar Strand, formaður svæðis­stjórn­ar Lands­bjarg­ar á Snæ­fellsnesi, í sam­tali við mbl.is.

Talið er að torf­an telji um eða yfir 60 dýr og sum­ir álíta að hætta sé á að hval­irn­ir séu átta­villt­ir og gætu synt upp í fjör­una og strandað þar.

„Það er ekkert búið að ákveða hvort eigi að gera eitthvað eða hvað á að gera,“ segir Einar og bætir við að hvalirnir séu ekki í neinni hættu.

„Það strandaði einn áðan sem var ýtt út og tveir í gær. Það er það eina sem hefur gerst. Þeir eru ekkert að ganga á land en ég held að þeir sem strönduðu hafi gert það fyrir hálfgerðan misskilning. Það er ekki eins og torfan sé að koma í land.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert