Unglingur gaf sig fram vegna árása

Pilturinn kom ásamt foreldrum sínum til lögreglu.
Pilturinn kom ásamt foreldrum sínum til lögreglu. mbl/Arnþór

Núna fyrir hádegi mun verða tekin skýrsla af unglingspilti vegna rannsóknar lögreglu á árásum á ungar stúlkur í Garðabæ á síðustu dögum en drengurinn kom til lögreglu ásamt foreldrum sínum og gaf sig fram. 

Lögreglan lýsti í gær eftir pilti í tengslum við árásirnar og birti mynd af honum. Ekki kemur fram í tilkynningu frá lögreglu hvort pilturinn sem gaf sig fram sé sá sem lýst var eftir í gær.

Alls hefur lögregla haft fimm tilvik til rannsóknar og skoðar nú hvort drengurinn tengist þeim öllum.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að allt kapp sé lagt á að upplýsa málið eins hratt og hægt er. Upplýsingar frá almenningi hafi skipt verulegu máli og vill lögregla þakka öllum þeim sem veitt hafa aðstoð við málið.

Ekki er hægt að gefa frekari upplýsingar um málið á þessu stigi, enda rannsóknin á frumstigum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert