Unnur fulltrúi stjórnvalda í loftslagsmálum

Unnur Brá Konráðsdóttir.
Unnur Brá Konráðsdóttir. mbl.is/Hanna

Unni Brá Konráðsdóttur, aðstoðarmanni ríkisstjórnarinnar, verður falið að tryggja samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þetta var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að tillögu forsætisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra. 

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir, að Unnur Brá muni annast samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, tryggja yfirsýn yfir verkefnið í heild sinni og annast eftirfylgni með framgangi loftslagsmála í heild, í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar. Þá muni Unnur Brá áfram vera verkefnisstjóri í vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar og sinna ýmsum öðrum þverfaglegum verkefnum sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar.

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, sem kynnt var 10. september sl. Í aðgerðaáætluninni er gerð grein fyrir fyrirhuguðum verkefnum í loftslagsmálum og hvernig unnt sé að hrinda metnaðarfullum áherslum um loftslagsmál í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar í framkvæmd, að því er segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins.

„Þar sem um er að ræða forgangsmál ríkisstjórnarinnar sem varðar öll ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands var samþykkt að Unnur Brá Konráðsdóttir annist samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindráðuneytinu, er formaður verkefnastjórnar aðgerðaráætlunar í loftslagsmálum sem skipuð var í mars 2018. Þá er loftslagsráð sem skipað var í maí 2018 ætlað að vera stjórnvöldum til aðhalds með markvissri ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir sem tengjast loftslagsmálum á Íslandi. Formaður Loftslagsráðs er Halldór Þorgeirsson,“ segir ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert