Kjaramálin ráðandi í verðbólguþróun

Verðbólguþróun frá janúar 2012 til okt. 2018.
Verðbólguþróun frá janúar 2012 til okt. 2018. mbl.is

Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir áhrifin af veikingu krónunnar eiga eftir að birtast frekar í verðbólgu. Þegar þau áhrif séu komin fram á næsta ári muni framhaldið að miklu leyti ráðast af kjarasamningum. Launaþróunin verði ráðandi.

Húsnæðisliðurinn var á tímabili leiðandi í verðbólguþróun.

„Ég tel að hægari hækkun á íbúðamarkaði dugi ekki til að vega á móti áhrifum gengislækkunarinnar og að verðbólgan verði um 3,5% í byrjun næsta árs. Til skemmri tíma hefur gengislækkunin vinninginn,“ segir Jón í umfjöllun um verðbólgumálin í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert