Fann sprengjuodd uppi á háalofti

Sprengjuoddurinn fannst í gær.
Sprengjuoddurinn fannst í gær. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurnesjum

Íbúi Reykjanesbæjar fann sprengjuodd þegar hann var að taka til uppi á háalofti hjá sér í gær. Hann hafði samband við lögregluna sem mætti á staðinn.

Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar var í framhaldinu kölluð á vettvang til þess að skoða og fjarlægja oddinn, sem var frá varnarliðinu. Hann reyndist vera óvirkur og hættulaus, að því er kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum.

Lögreglan hvetur fólk til að ganga varlega um hluti sem þessa þar sem saga þeirri og virkni sé óþekkt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert