Um hálftólfleytið bárust slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu tvær tilkynningar um eld, annars vegar á Álfhólsvegi í Kópavogi og hins vegar í Veghúsum í Grafarvogi. Tilkynningarnar bárust með nokkurra mínútna millibili.
Um minni háttar eld var að ræða og höfðu húsráðendur ráðið niðurlögum eldsins á báðum stöðum þegar slökkvilið kom á vettvang.
Á Álfhólsvegi kviknaði í potti á eldavél og í Veghúsum kviknaði í út frá einhvers konar eldamennsku, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Reykræsta þarf húsnæðið, að minnsta kosti á Álfhólsvegi.