Harma „óvandaðan fréttaflutning“

Heilbrigðistofnun Suðurlands á Selfossi.
Heilbrigðistofnun Suðurlands á Selfossi. mbl.is/Sigurður Bogi

Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir framkvæmdastjórn stofnunarinnar vísa á bug „villandi fyrirsögn“ fréttamanns Stöðvar 2. Þá harmi stjórnin óvandaðan fréttaflutning stöðvarinnar „þar sem einungis er hálf sagan sögð um mönnun sjúkraflutninga á Suðurlandi“.

Þetta segir Herdís í yfirlýsingu sem birt hefur verið á vef stofnunarinnar, en um er að ræða frétt Stöðvar 2 og Vísis sem birtist í gærkvöldi, þar sem segir að fækka eigi sjúkraflutningamönnum á Suðurlandi um fjóra frá 1. febrúar, þrátt fyrir mikla fjölgun alvarlegra slysa á svæðinu.

„Það er mikill ábyrgðarhluti hjá fréttamanni að dreifa vísvitandi villandi fréttum af raunverulegri stöðu sjúkraflutninga á Suðurlandi og sá með því tortryggni. Hafa skal það sem sannara reynist,“ segir Herdís og bendir á að frá árinu 2014 hafi sjúkraflutningum fjölgað um 40% á Suðurlandi.

„Fjárframlög hafa aukist til sjúkraflutinga á sama tíma, en fjármunir til rekstursins vaxa ekki jafn hratt og starfsemin. Fjárveitingavaldinu er hins vegar vel kunn staðan og allir aðilar meðvitaðir um hver aukningin hefur verið,“ segir hún meðal annars.

Viðbragð verði ekki skert

Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU.
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU.

Nauðsynlegt sé að tryggja bestu þjónustu og öruggt viðbragð sjúkraflutninga fyrir það fé sem sé til ráðstöfunar. Á síðustu tveimur árum hafi kostnaður við sjúkraflutninga á Suðurlandi vaxið um 150 milljónir króna og sé það meira en stofnunin ræður við.

„Á sama tíma hefur sjúkraflutningamönnum verið fjölgað úr 17,2 stöðugildum árið 2015 í 27,3 stöðugildi þegar mest var nú í sumar og haustið 2018 til að bregðast við auknu álagi.“

Mönnun hafi þá verið með þeim hætti að sami fjöldi sjúkraflutningamanna sé á vakt á Selfossi og í Rangárþingi óháð álagstíma og dreifingu útkalla yfir sólarhringinn.

„Til að mæta auknum kostnaði og til að dreifa mönnun betur á álagstímum verður sett inn ein bakvaktlína í stað staðarvaktar á næturvöktum þann 1. febrúar 2019 og verða því stöðugildi alls 24,1 til að byrja með. Þessi breyting er unnin í samráði og samvinnu við stjórnendur og millistjórnendur í sjúkraflutningum innan HSU og var vel kynnt trúnaðarmönnum sjúkraflutningamanna og stéttarfélagi sjúkraflutningamanna, LSOS, bæði símleiðis og á samstarfsnefndarfundi,“ segir Herdís.

„Viðbragð verður ekki skert á svæðinu og ávallt er bætt í mannskap þegar álagstoppar myndast í útköllum. Það mun ekki breytast frá því sem nú er. Frá árinu 2015 hefur því verið fjölgað um sj- sjúkraflutningamenn á Suðurlandi samhliða vaxandi álagi. Á álagstímum, eins og á sumrin, er bætt enn betur við mönnun eins og gert var sl. sumar og nú á haustmánuðum 2018. Engum fastráðnum sjúkraflutningamönnum hefur verið sagt upp störfum.“

„Beinlínis ósönn“

Framkvæmdastjórn HSU er loks sögð harma „óvandaðan fréttaflutning Stöðvar 2“ þar sem einungis sé hálf sagan sögð um mönnun sjúkraflutninga á Suðurlandi.

„Fyrirsögn fréttarinnar er beinlínis ósönn og til þess eins gerð að valda íbúum óþarfa áhyggjum og kasta rýrð á fagleg og framúrskarandi vinnubrögð sjúkraflutningamanna á Suðurlandi sem starfa þar við afar erfiðar aðstæður og sívaxandi álag.“

Í yfirlýsingu sem birt hefur verið á vef Vísis bendir fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar á að í upphaflegu viðtali við Herdísi og í yfirlýsingu stofnunarinnar komi meðal annars fram að fækka eigi stöðugildum sjúkraflutningamanna á næsta ári og að álag sé sívaxandi. Fréttastofan standi því við fréttina og fyrirsögn hennar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert