Segir stefna í hörðustu átök í áratugi

Drífa Snæ­dal, formaður ASÍ, vandar stjórnvöldum ekki kveðjurnar í vikulegum …
Drífa Snæ­dal, formaður ASÍ, vandar stjórnvöldum ekki kveðjurnar í vikulegum forsetapistli sínum á vef sambandsins. mbl.is/Hari

„Mikil er ábyrgð þeirra sem hafa leyft misréttinu að aukast síðustu ár og áratugi þannig að hagsældin í okkar ríka landi hefur ekki skilað sér til allra. Þeirra er ábyrgðin á því að nú stefnir í hörðustu átök á vinnumarkaði í áratugi,“ skrifar Drífa Snædal forseti ASÍ í vikulegum forsetapistli sínum, sem ber yfirskriftina „Þess vegna átök“ og lesa má í heild á vef sambandsins.

Drífa segir það „hárrétt sem bent hefur verið á að deilurnar eru á milli vinnandi fólks og atvinnurekenda“ en einnig að ekki sé hægt að „horfa fram hjá því að stjórnvöld hafa tækið í höndunum til að jafna kjör og tryggja velferð.“

„Að skattkerfið hafi fengið að þróast með þeim hætti að hinir ríkari fái skattalækkanir á meðan skattbyrðin eykst hjá hinum tekjulægstu er uppskriftin að deilum á vinnumarkaði. Það var því ekkert nema eðlilegt að verkalýðshreyfingin gæfi stjórnvöldum tækifæri til að afstýra átökum með því að laga skattkerfið. En hvað gerðist? Skattalækkun á alla, þar með talið bankastjórana sem hafa fengið ríflegar launahækkanir undanfarið, svo ekki sé minnst á kjörnu fulltrúana sem kjararáð hefur verið svo rausnarlegt við. Skattalækkunin nemur svo tæplega sjö þúsund krónum sem eiga að koma til framkvæmda einhverntíman á næstu þremur árum. Þetta voru mikil vonbrigði. Réttlætiskenndinni er greinilega ekki fyrir að fara við ríkisstjórnarborðið. En nú er ljóst að vinnandi fólk þarf að einbeita sér að atvinnurekendum til að ná fram réttlæti og sanngirni,“ skrifar Drífa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert