Telja atkvæðagreiðslu Eflingar ólögmæta

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í húsakynnum ríkissáttasemjara í …
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í húsakynnum ríkissáttasemjara í janúar. mbl.is/Eggert

Samtök atvinnulífsins hafa skorað á stéttarfélagið Eflingu að „stöðva nú þegar“ atkvæðagreiðslu um verkfall sem koma á til framkvæmda 8. mars næstkomandi. SA telja ólöglega staðið að atkvæðagreiðslu um verkfallið. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef samtakanna.

„Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur er heimilt að láta vinnustöðvun einungis ná til ákveðins hóps félagsmanna en þá er ákvörðun tekin með atkvæðum þeirra sem vinnustöðvun er ætlað að taka til.

Samkvæmt fréttum áætlar Efling að verkfallið nái til 700 félagsmanna en félagið hefur hins vegar boðið yfir 8.000 félagsmönnum að taka þátt í atkvæðagreiðslu um verkfallið. SA telja það fyrirkomulag ólögmætt enda mætti með þeim hætti fá verkfall samþykkt jafnvel þótt allir þeir sem vinnustöðvun er ætlað að taka til greiði atkvæði gegn verkfalli,“ segir á vef SA.

Fram kemur á vef SA að ef Efling bregðist ekki við þessari áskorun muni samtökin höfða félagsdómsmál gegn stéttarfélaginu og að niðurstaða dómsins muni liggja fyrir áður en verkfalli er ætlað að koma til framkvæmda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert