Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur boðað til málþings um áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi.
Málþingið fer fram á fimmtudaginn í fyrirlestrasal á 1. hæð í Sjávarútvegshúsinu að Skúlagötu 4.
Bent er á í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu að Hafrannsóknastofnun hafi fyrst gefið út áhættumatið í júlí 2017. Ráðherra hafi svo nýlega lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á ýmsum lögum sem tengjast fiskeldi og þar sé lagt til að áhættumatið verði lögfest og jafnframt að það verði tekið til endurskoðunar í sumar.
Á málþinginu verði farið yfir áhættumatið og þá vinnu sem liggi að baki því, auk þess sem rædd verði næstu skref í þróun þess.
Dagskráin er með eftirfarandi hætti: