Óska eftir skýrslu um loðnuna

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. mbl.is/Hari

Allir þingmenn Samfylkingar, Pírata, Viðreisnar og Flokks fólksins hafa óskað eftir að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, flytji skýrslu um nýtingu og vistfræðilega þýðingu loðnustofnsins á árunum 2000 til 2019.

Skýrslubeiðnin, sem er ítarleg og í alls sautján töluliðum, má sjá hér á vef Alþingis.

Í tilkynningu frá Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins og fyrsta flutningsmanni beiðninnar, segir að ástand loðnustofnsins sé grafalvarlegt, bæði frá efnahagslegum og umhverfislegum sjónarmiðum.

„Afar mikilvægt er að þingið sem og þjóðin öll fái sem gleggstar upplýsingar um stöðu mála hvað varðar nýtingu og líffræðilega þætti sem tengjast loðnunni,“ segir Inga.

Samkvæmt þingskapalögum skuli ráðherra ljúka skýrslugerðinni innan tíu vikna eftir að skýrslubeiðnin er samþykkt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert