Færðu stúlkunni nýjan hjálm

Stúlkan var að vonum ánægð með nýja reiðhjólahjálminn sinn.
Stúlkan var að vonum ánægð með nýja reiðhjólahjálminn sinn. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Starfsmenn hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins færðu níu ára stúlku nýjan reiðhjólahjálm í dag eftir að hafa flutt hana mikið slasaða er hún varð fyrir bíl á Sogavegi fyrir rúmri viku.

Að því er segir á Facebook-síðu slökkviliðsins er stúlkan á góðum batavegi.

Hjálmurinn hennar var aftur á móti ónýtur og því ákvað áhöfnin af báðum sjúkrabílunum sem komu á vettvang að fagna því með henni að allt endaði vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert