Ríkið hafnar bótakröfum Guðjóns

Guðjón Skarphéðinsson stefndi rík­inu til greiðslu bóta í sumar. Stefnan …
Guðjón Skarphéðinsson stefndi rík­inu til greiðslu bóta í sumar. Stefnan var þingfest í júní og gerði Guðjón kröfu um rúma 1,3 milljarða í bætur fyrir ólöglega frelsisskerðingu í tengslum við Geirfinnsmálið. mbl.is/Golli

Íslenska ríkið hafnar öllum bótakröfum Guðjóns Skarphéðinssonar og krefst sýknu. Guðjón var árið 1980 fund­inn sek­ur um að að hafa orðið Guðmundi og Geirfinni Ein­ars­syni að bana sex árum áður. 

Fréttablaðið greinir frá því að kröfu ríkisins um sýknu er lýst í greinargerð ríkislögmanns sem lögð var fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Í greinargerðinni er þess einnig krafist að Guðjón verði dæmdur til að greiða ríkinu málskostnað. 

Greint var frá því í júlí að Guðjón hefði stefnt rík­inu til greiðslu bóta. Stefnan var þingfest í júní og gerði Guðjón kröfu um rúma 1,3 milljarða í bætur fyrir ólöglega frelsisskerðingu í tengslum við Geirfinnsmálið. 

Auk Guðjóns voru Kristján Viðar Viðars­son, Sæv­ar Ciesi­elski, Al­bert Kla­hn, Tryggvi Rún­ar Leifs­son og Erla Bolla­dótt­ir sak­felld. Sex­menn­ing­arn­ir fengu mis­langa dóma, en Guðjón var dæmd­ur í 10 ára fang­elsi. Hann sat þó aðeins inni í fjög­ur og hálft ár, og fékk árið 1995 upp­reist æru.

Tæpt ár er síðan Hæstirétt­ur sýknaði alla sak­born­inga að Erlu und­an­skil­inni. Bað for­sæt­is­ráðherra fimm­menn­ing­ana af­sök­un­ar fyr­ir hönd rík­is­stjórn­ar­inn­ar og skipaði í kjöl­farið sátta­nefnd sem skyldi leit­ast við að semja um skaðabæt­ur.

Guðjón var sviptur frelsi í 792 daga og gerir kröfu um 972.192.250 krónur ásamt dráttarvöxtum. Fjárhæðin er byggð á sömu reiknireglu og miðað var við í dómi Hæstaréttar um bætur til fjögurra manna sem sátu rúmu 100 daga í gæsluvarðhaldi vegna sama máls. 

Ríkið hafnar því hins vegar að mál fjórmenninganna geti talist fordæmi um bætur Guðjóns. Ríkið vísar einnig til þess að dómkrafa Guðjón sé fyrnd.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert