Kólí og E.coli-gerlar í vatni frá Grábrókarveitu

Þetta kort sýnir þjónustusvæði Grábrókarveitu.
Þetta kort sýnir þjónustusvæði Grábrókarveitu. Kort/mbl.is

Íbúar í Borgarnesi, á Bifröst og Varmalandi og aðrir viðskiptavinir vatnsveitu Veitna úr Grábókarhrauni þurfa að sjóða neysluvatn sitt, en staðfesting hefur borist um gerlamengun í vatninu, samkvæmt tilkynningu frá Veitum.

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands og Veitur leggja áherslu á að notendur sjóði neysluvatn þar til búnaðurinn verður virkur enda getur gerlasmit valdið slæmum sýkingum hjá fólki, einkum þeim sem eru viðkvæmir fyrir, þar með talin eru börn og eldra fólk.

„Hvort tveggja kólí og E.coli gerlar fundust í sýninu sem gruninn vakti. Um miðja næstu viku verður tekinn í notkun lýsingarbúnaður við vatnsbólið og skorað er á fólk að sjóða neysluvatn þangað til,“ segir í tilkynningunni.

Veitur hófu daglega sýnatöku úr vatnsbólinu þegar fyrst kviknaði grunur um gerlamengun í því á fimmtudag í síðustu viku. Þau sýni reyndust mengunarlaus þar til grunur kviknaði aftur um gerlamengun í gær. Í morgun fékkst staðfesting á þeim, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningunni.

Þar segir að vatnsbólið í Grábrókarhrauni hafi verið tekið í notkun árið 2007 og þetta sé í fyrsta sinn sem notendur þess séu hvattir til þess að sjóða neysluvatnið. Ákveðið hefur verið að setja upp lýsingarbúnað við vatnsbólið.

„Stefnt er að því að hann verði kominn í notkun á miðvikudag en hann mun tryggja öryggi vatnsins,“ segir í tilkynningu Veitna, sem jafnframt segir starfsfólk sitt leggja kapp á að ná til flestra viðskiptavina, auk þess sem eftirlitsaðilum sé haldið vel upplýstum um framvinduna.

Kólí- og E.coli-gerlar hafa fundist í vatnssýni úr vatnsveitu Veitna …
Kólí- og E.coli-gerlar hafa fundist í vatnssýni úr vatnsveitu Veitna úr Grábrókarhrauni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert