Tókst þú frystikistu ófrjálsri hendi í dag?

Lögreglan biður fólk að hafa samband ef það veit hvar …
Lögreglan biður fólk að hafa samband ef það veit hvar nýja frystikistan er niðurkomin. Ljósmynd/samsett

Svo virðist sem einhver fingralangur hafi tekið nýja frystikistu ófrjálsri hendi sem lá utanvegar á Skeiðavegi eftir klukkan fjögur í dag. Óheppilega vildi til að frystikistan féll af bifreið manns sem var að flytja hana um þennan veg í dag. 

Þar sem eigandinn var einn á ferð sótti hann mann sér til aðstoðar til þess að koma frystikistunni aftur upp á pallinn. Þegar hann kom aftur á vettvang greip hann þó í tómt því að búið að fjarlægja frystikistuna í millitíðinni.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert