Lögreglan leitar að tóbaksþjófi

Ljósmynd/Lögreglan á Vestfjörðum

Lögreglan á Vestfjörðum leitar karlmanns í tengslum við rannsókn á innbroti í verslunina Hamraborg á Ísafirði aðfaranótt sunnudags.

Allir sem geta gefið upplýsingar um manninn eru hvattir til að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum í síma 444-0400 eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Í innbrotinu var stolið töluverðu magni af tóbaki og virðist hafa verið brotist inn um kl. 3 um nóttina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert